þriðjudagur, september 05, 2006

Þessi bloggsíða er óvirk.
Heimasíða Ívars er: www.hi.is/~iob2

fimmtudagur, júní 30, 2005

Heim á farsældar Frón

Jæja, þá er bara komið að lokum hér í Danmörku. Setti dótið í gám í gær og er þreif svo íbúðina. Nú er allt klárt og ég bíð eftir að inspektorinn (húsvörðurinn) komi og taki íbúðina út og leggi blessun sína yfir fráganginn. Það er svolítið skrýtin tilhugsun að vera að fara heim. Þetta eru búin að vera tvö góð ár hér í Köben. Þótt erfitt hafi verið fyrir okkur Svönu að búa hvort í sínu landinu í vetur þá var það þroskandi og styrkti bara okkar samband enn frekar. Nú sameinumst við aftur á landinu bláa. Fyrst og fremst hefur maður lært ótrúlega margt á þessum tveimur árum og öðlast mikla reynslu sem, eftir á að hyggja, maður hefði ekki viljað missa af. Það er virkilega þroskandi að prófa að búa í útlöndum í smátíma. En nú er bara komið að lokum og ég hlakka til að koma heim!

Námslega séð er ég mjög sáttur við dvölina hér. Gekk náttúrlega glimrandi í lokaprófinu/vörninni og lærði geysilega mikið af því að skrifa mastersritgerðina. En einna mikilvægust eru líklega þau sambönd og það samstarf sem ég er kominn í með fólki hér í Kaupmannahöfn og Lundi. Það mun koma sér vel fyrir framtíðina og hefur þegar leitt til þess að ég er að fara í doktorsnám við Háskóla Íslands í samvinnu við Kaupmannahafnarháskóla. Svanhildur klárar sitt meistaranám í lok sumars og fer svo að vinna. En í september ætlum við að verðlauna okkur fyrir meistaranámið og skella okkur í útskrifarferð og langþráð frí til Ítalíu. Ætlunin er að heimsækja Örnu vinkonu Svönu í Flórens og skoða sig um þar í kring. Þetta er svona áætlun nánustu framtíðar.

Ég vil svo bara segja: Kaupmannahöfn, takk fyrir okkur, hér var gott að búa! Og ekki skemmir það fyrir að veðrið síðasta mánuðinn hefur verið æðislegt. Bætti aðeins upp fyrir vonbrigðin síðasta sumar.

Að lokum vil ég bara segja við ykkur sem hafið fylgst með okkur hér á blogginu - takk fyrir það, það var gaman að deila útlandareynslu okkar með ykkur. En þar sem útlandaverunni er lokið að sinni verður þessu bloggi hér með lagt.

Heil og sæl!

mánudagur, júní 27, 2005

Til hamingju cand.scient Ívar Örn;)

Ívar var að hringja og ég er barasta alveg að springa úr stolti. Hann stóð sig alveg glæsilega og náði sér í 11 í einkunn sem samsvarar svona u.þ.b 9.7 á íslenskum kvarða. 13 er allrahæst og 12 er ekki inni í skalanum. Hann fékk rosalega góð ummæli frá kennurunum og prófdómarinn sagði að þetta væri alveg virkilega góð ritgerð sem hann hefði notið þess að lesa. Ívar er auðvitað alveg í skýjunum sem og ég:) Verst að ég get ekki fagnað með honum í dag. Það bíður þangað til hann kemur heim á fimmtudaginn!
Dómsdagur í dag!

Jæja, þá er komið að því sem maður er búinn að bíða eftir í tvö ár núna, þe. að klára mastersnámið. Vörnin er í dag kl. 13 og ég sit hér heima að renna yfir þetta áður en ég fer í skólann - síðasti undirbúningurinn. Held ég sé alveg þokkalega undirbúinn fyrir þetta en það verður bara að koma í ljós, meira get ég ekki gert héðan af. En sem sagt, dóminn yfir ritgerðinni og frammistöðu minni í vörninni fæ ég í dag. Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því en fyrst og fremst hlakka ég bara til að verða búinn. Stress, spenna, stress, spenna..........

Læt heyra frá mér síðar.

mánudagur, júní 20, 2005

Innipúki í blíðunni :-(

Hér hefur verið blússandi bongóblíða síðan í byrjun síðustu viku með sól og hita yfir 20 stigum alla daga. Akkúrat í augnablikinu er 21 gráða í Köben en víða í Danmörku eru gráðurnar um 25 talsins. Þetta er ekki amalegt veður, verð ég nú bara að segja. Það sem hefur gerst frá síðustu færslu er eitt og annað. Aggi kom í síðustu viku frá Kolding og tók tvær nætur á gistiheimil Ívars á leið heim til Íslands. Ég tók nú frí frá lestrinum á meðan. Fór svo í skólann á föstudag og síðan með Dodda og Valgerði á tónleika með Sabya í Tívolí um kvöldið. Mjög gaman og alveg stappað í Tívolí, enda veðrið yndislegt og kjörið fyrir útitónleika. Á laugardeginum fór ég svo með þeim á þjóðhátíðarskemmtun Íslendinga sem haldin var á Amagerströnd. Það var ágætt en stemmningin var frekar dönsk, fannst mér, þeas. fólk sitjandi á grasinu í algjörri afslöppun, sötrandi bjór, syngjandi og spilandi í gítar eða að leika við börnin - ekki ólíkt því sem maður sér í görðunum hér í borginni á góðviðrisdögum. Íslenskt góðgæti, eins og nammi og harðfiskur, var auðvitað til sölu og maður smakkaði nú aðeins á þessu. Í gær fór ég í skólann frá 13-17 þrátt fyrir sunnudag og einmuna veðurblíðu. Eins og stundum á góðviðrisdögum gekk ég í gegnum Kóngsgarðinn á leið heim og virti fyrir mér mannlífið sem einkenndist aðallega af flatmagandi fólki. Og núna er ég í skólanum og það er nokkuð heitt hér í kjallaranum á Geocenter. Stefni á að vera duglegur að lesa og undirbúa mig svo ég geti nú svarað þeim spurningum sem eiga eftir að dynja á mér í vörninni næstkomandi mánudag.

þriðjudagur, júní 14, 2005

Próflestur í sumarblíðu

Það er sól og sumarblíða í Köben í dag. Hitinn á að fara upp í 20 stig eftir hádegið og síðan á að verða enn hlýrra á morgun. Eins og svo oft áður þá nær maður lítið að njóta sumarblíðunnar vegna inniveru. Þessa dagana er ég að lesa fyrir prófið/vörnina sem fram fer eftir tæpar tvær vikur. Þegar það er búið verð ég, ef allt gengur að óskum, formlega orðinn Cand. Scient. (master) frá Kaupmannahafnarháskóla. Samt skrýtið að tilhugsunin við það er hálfdofin eitthvað, svona eins og mér finnist þetta ekkert merkilegt. En auðvitað er þetta ákveðinn áfangi, því er ekki að neita. Eflaust verð ég voðalega merkilegur með mig þegar þetta er formlega í höfn, fullur menntahroka og læt rigna upp í nefið á mér :-) En það er eins gott að gera þá ekki í brækurnar í vörninni heldur gera bara sitt besta.

Kíkti í mat til Dodda og Valgerðar um helgina og það var bara ljómandi. Sótti í leiðinni upptökugræjurnar mínar sem þau hafa haft í láni í dágóðan tíma. Þau höfðu nýtt það vel og tekið upp fimm lög sem ég fékk að heyra. Bara fjári gott hjá þeim hjónum - ég bíð eftir eintaki af disknum! Síðan var leikur með FC Íslandi á laugardag og hann vannst sannfærandi 5-3. Næsti leikur er á morgun og verður hann jafnframt síðasti leikur minn með FC Íslandi. Eins gott að maður setji eins og eitt kveðjumark. Svo geri ég náttúrlega ráð fyrir heiðursmannaskiptingu í lok leiks við tilheyrandi fagnaðarlæti áhorfenda..... Um næstu helgi er svo þjóðhátíð Íslendinga á Amagarstrand og partý hjá Selmu Sørensen. Og svo er Húsavíkur-Aggi á leið heim til Íslands og kemur við hjá mér og gistir í vikunni. Það er því ýmislegt á döfinni þótt próflesturinn hafi vissulega forgang.

Af Svanhildi er það að frétta að hún er flutt heim til Íslands og vinnur bara baki brotnu í sinni mastersritgerð sem hún á að skila í lok sumars. Ég öfunda hana að vera komin heim en það styttist í það hjá mér líka. Á flug að kvöldi 30. júní.

Jæja, gott í bili. Ses!

þriðjudagur, júní 07, 2005

Uppfærsla frá Köben

Sælt veri fólkið. Hér í Kaupmannahöfn er allt með kyrrum kjörum. Síðan ég skilaði ritgerðinni fyrir 10 dögum hef ég verið í langþráðri afslöppun. Sævi kom hingað síðasta miðvikudag og var fram á sunnudagskvöld. Gaman að fá Sæva og við gerðum ýmislegt. Fórum m.a. í búðaráp að hætti karlmanna, kíktum í Kristjaníu, fórum upp í turninn á Vor Frelsers Kirke og fengum ansi gott útsýni yfir borgina, fórum á tónleika með Elvis Costello í Tívolí og skemmtum okkur vel. Costello er töffari af guðs náð. Lentum í eldingum og úrhelli á tónleikunum. Alltaf gaman af eldingaveðri og svona 'útlenskri' dembu, sérstaklega þegar manni verður ekkert kalt. Sævi kallinn er víst ekki sama sinnis og segir að ég sé bara skrýtinn. Það er svo sem ekkert nýtt... Nú nú, síðan fórum við til Malmö á sunnudag og röltum um miðbæinn og fengum okkur að borða. Þegar við vorum búnir að fá drykkina okkar og biðum eftir matnum kom kona á miðjum aldri inn á staðinn og varð eitthvað misstíga þannig að hún hrasaði við borðið okkar. Sævi hrökk í kút svo að glasið mitt datt í gólfið og smjallaðist og kók yfir fæturna á mér. Konan varð auðvitað mjög leið yfir þessu og baðst afsökunar. Síðan settist hún bara og fékk sér hvítvín og kveikti í vindli. Þegar við vorum svo að borga reikninginn kom blessaða konan og gaf okkur 100 kr sænskar fyrir kókið sem fór til spillis!! Við keyptum okkur ís og nammi fyrir :-)

Afslöppunin er að mestu yfirstaðin hjá mér núna þar sem ég þarf að fara að undirbúa flutninginn heim, pakka og þ.h., áður en ég fer að lesa fyrir lokaprófið. En síðar í dag ætla ég að spila minn fyrsta leik með FC Íslandi á þessu ári.

sunnudagur, júní 05, 2005

Upp á við!

Þá fer bara dvölinni hérna í St.Andrews að ljúka. Ég er ekki alveg búin að ná þessu ennþá held ég. Árið er búið að líða ótrúlega fljótt þótt það hafi verið strembið. Ég á alveg pottþétt eftir að sakna þessa litla bæjar mikið. Hérna er allt svo nálægt manni að maður getur gengið allt; skólinn, búðirnar, bankinn, pósthúsið, bókasafnið, bíóið, veitingastaðirnir, allt er þetta í innan við 500 metra göngufjarlægð. Ég hlakka sko örugglega ekki til að koma heim í umferðateppurnar eftir að hafa verið hérna. En ég hlakka mjög mikið til að koma heim og hitta vini og vandamenn. Það á ábyggilega eftir að verða eitthvað skrítið að vera ekki að fara út strax aftur en það verður æði að hafa allt dótið mitt á sama stað.... eða svona næstum allt. Ívar kemur auðvitað með seinasta hlutann af því þegar hann kemur frá Danmörku. Það hefði annars verið voða gaman að geta bara komið heim og tekið sér smá sumarfrí. En ég þarf víst að fara að hanga inni við lærdóminn þar til í lok ágúst:(

Annars eru síðustu dagar búnir að vera fínir. Fór út að borða með skólafélögum og horfði á svakalegan lokaþátt í Desperate hjá Siggu. Svo hitti ég aftur bekkinn á föstudaginn og við fórum á bóndabæ hérna rétt fyrir utan bæinn að tína jarðaber í sól og hita. Núna á ég soldið mikið af jarðaberjum sem ég þarf að reyna að klára, missti mig aðeins í tínslunni! Ætli ég píni þau ekki ofan í múttu og pabba þegar þau koma á eftir. Hlakka mikið til að sjá þau. Þau eru búin að vera í Glasgow í 2 daga og koma svo hingað um eittleytið í dag. Ég ætti eiginlega aðeins að taka til í 7 fermetra herberginu mínu - já ég var að mæla það rétt áðan. Svona kannski í minna lagi, en þetta gat maður og m.a.s. gátum við Ívar verið hérna saman í mánuð. Fyrst við gátum það þá getum við allt held ég! En núna liggur leiðin bara upp á við....:-)

mánudagur, maí 30, 2005

Það helsta frá St.Andrews.

Best að skella einhverju smáræði hérna inn núna. Á meðan Ívar fagnar því að ljúka sinni mastersritgerð þá “fagna” ég því að byrja mína! Hún verður nú ekki eins massíf og Ívars ritgerð enda megum við ekki fara yfir 15þúsund orða markið og höfum bara 3 mánuði til að gera hana. Kerfið í Bretlandi er annað en á Norðurlöndunum. Svo þarf ég heldur ekkert að fara í próf eins og Ívar, sem mér finnst nú reyndar alveg fáránlegt. Eins og það sé ekki nóg að gera þessa blessuðu ritgerð og kynna hana!

En ég er sem sagt alveg á fullu núna í að redda öllum gögnum og gera mér almennilega grein fyrir hvernig ég mun vinna gögnin. Mér er alltaf að detta í hug alls konar ný vandamál en sem betur fer þá saxast á þau líka. Ég sendi tölvupósta eins og óð manneskja á fólk heima og hér. Ég þarf nefnilega að fá sem mest á hreint áður en ég fer heim 9.júní. Þarf að koma málum á hreint við leiðbeinanda minn og sjá til þess að hann samþykki það sem ég er að gera.

Sem betur fer er nú ekkert ofsalega gott veður búið að vera hérna eins og í Danmörku, því þá væri nú heldur leiðinlegt að hanga inni og læra. Þessa stundina er ég með opinn gluggann hjá mér og það er algjört skýfall. Ansi notalegt að heyra svona í rigningunni.

Annars ekki mikið að frétta. Við sambýlingarnir hérna vorum með smá matarboð á laugardaginn og fórum eftir það í postgrad partý á einu residensinu hérna. Það var alveg frábært og langt síðan ég hef dansað svona mikið! Á morgun fer ég svo út að borða með bekknum mínum og einum kennaranum, svona eins konar kveðjuhittingur.....( uuu rigningin var að breytast í haglél sem skoppar hérna inn!! Gleðilegt sumar!). Á miðvikudaginn er svo lokaspretturinn í Desperate Housewives, tveir lokaþættir sýndir í röð. Þá förum við Shawn (sem er í bekk með Siggu) til Siggu og Elvars að glápa. Spennó!

Adieu!

föstudagur, maí 27, 2005

Búinn!!!

Ég er búinn að skila ritgerðinni - jíííha...!!! Blessunin er 103 bls. fyrir utan ágrip (á ensku, dönsku og íslensku), þakkarorð, efnisyfirlit og myndaskrá. Ég er búinn að skila ritgerðinni sem ég hef verið að vinna að í allan vetur - ritgerðinni sem er afrakstur rannsókna við Brúarjökul sumrin 2003 og 2004 - ritgerðinni sem ég vonast til að fá góða einkunn fyrir! Ég hef góða tilfinningu fyrir ritgerðinni sjálfri. En hér í Danmörku er þetta ekki svo einfalt að maður skili, haldi fyrirlestur og fái svo einkunn. Hér heldur maður engan fyrirlestur, eins og tíðkast t.d. heima á Íslandi og reyndar víðast hvar, heldur fer maður í munnlegt próf. Í því prófi er maður spurður spjörunum út varðandi ritgerðina auk þess sem heimilt er að spyrja úr öllum heimildalistanum sem henni fylgir. Síðan fær maður eina einkunn sem byggir á ritgerðinni annars vegar og munnlega prófinu hins vegar. Þetta er því ekki alveg búið hjá mér ennþá. Ég fer í munnlega prófið þann 27. júní. Ég ætla hins vegar að slaka á næstu tvær vikurnar ásamt því að byrja að pakka og undirbúa flutninginn til Íslands. Og ekki má gleyma því að Sævi kallinn kemur í heimsókn næsta miðvikudag.

Núna veit ég hins vegar ekkert hvað ég á af mér að gera. Búinn að vinna í þessari ritgerð 14-16 tíma á sólarhring síðustu tvær vikurnar og veit því ekkert hvað ég get gert núna þegar ritgerðin er frá. En ætli ég bregði mér ekki út í góða veðrið sem "hrjáir" okkur hér í Köben þessa dagana. Ég var í Lundi í gær og þar var steikjandi hiti. Lundur er æðislegur bær, lítill og fallegur, sérstaklega á dögum sem þessum. Mæli sterklega með heimsókn þangað. Í dag er spáð um 22-24 stiga hita hér í Köben. Á morgun spáir enn meiri hlýindum með allt að 30 gráðum inn til landsins. Það ætti því ekki að verða alveg svo heitt hér í Köben en nógu heitt verður samt.

Á sunnudag og mánudag fer ég með íslensku jarðfræðistúdentunum, sem ég tók á móti hér fyrr í vikunni, í tvær dagsferðir hér í Danmörku. Við ætlum að fara að skoða Stevns Klint og Møns Klint sem eru mjög merkilegir staðir fyrir jarðfræði Danmerkur. Ég hef ekki enn séð þessa staði og hlakka mjög mikið til.

En jæja, best að drífa sig út í hitann. Bið að heilsa í bili.

þriðjudagur, maí 24, 2005

Til hamingju með afmæli Ívar!

Jæja þá er maður orðinn einu árinu eldri og vitrari og Ívar líka! Hann fær ekki að njóta þess lengi að vera yngri en ég. Leiðinlegt að geta ekki verið saman á afmælisdaginn en við bætum það bara upp næst.

Ég eyddi gærdeginum í Edinborg með Siggu. Það var alveg æði. Hún kom með afmælismorgunkaffi handa okkur í lestina og svo bauð hún mér út að borða í Edinborg. Síðan þrömmuðum við gjörsamlega af okkur fæturna í búðunum. Keyptum engin ósköp en samt svona smá. Í gærkvöldi var ég svo bara stanslaust í símanum við Ísland og Danmörku.

Svo er ég nú líka búin að vera sæmilega dugleg í dag bara. Byrjaði daginn á að hringja í danska “skattavesenið” af því að ég skildi ekki alveg ársuppgjörið sem ég fékk frá þeim. Þar stóð að þeir ætluðu að leggja inn á mig 200 þús kall vegna ofgreidds skatts. Þar sem ég er nú svo ofurheiðarleg þá ákvað ég að kanna þetta betur. Kom í ljós að þeir héldu að ég hefði verið í skóla þann tíma sem ég var að vinna í fyrra og þá fær maður víst einhvern skattaafslátt. Konan í símanum var MJÖG þakklát og kannski soldið hissa líka. Ég hefði auðvitað geta hirt þetta og bara réttlætt þetta þannig að Danirnir skulduðu okkur Íslendingum nú bara annað eins eftir að hafa haldið okkur í ánauð árum saman... En nei ég ákvað að það væri ekki alveg nógu gott “karma”. Eftir þetta fór ég að ná í lokaritgerð í einum kúrsinum og gekk bara rosalega vel.

Nú svo fór ég í ýmiss konar stúss í bænum. Gott veður í dag og allir léttklæddir með ís í hendi. Ég ætlaði að vera voðalega dugleg að byrja á ritgerðinni fyrir sumarið en held ég fresti því þangað til á morgun. Hitti leiðbeinandann minn, Chris Dibben, á morgun og þá fæ ég vonandi smá spark í rassinn!

Núna ætla ég svo bara að skella mér í smá jóga ...

Ha det godt!

mánudagur, maí 23, 2005

Allt að klárast

Bara rétt að uppfæra hérna og óska Svanhildi um leið til hamingju með afmælið :-) Hún eyðir deginum í Edinborg ásamt Siggu. Vona að Svana kaupi sér eitthvað í afmælisgjöf... Allt gott að frétta annars. Var að taka á móti hóp íslenskra jarðfræðinema frá HÍ og sýna þeim skólann. Fór svo með þeim á jarðfræðisafnið. Hópurinn er í jarðfræðiferð um Danmörku og Svíþjóð. Ég fer með þeim í ferðir á sunnudag og mánudag. Þau ætla til Borgundarhólms næstu daga en ég kemst því miður ekki með þar sem ég skila ritgerðinni á föstudag.

Svana kláraði prófið sitt síðasta fimmtudag og gekk vel. Hún er núna í smá afslöppun áður en hún fer af stað í sinni lokaritgerð sem hún skrifar á Íslandi í sumar.

Þetta var svona það helsta. Ætli ég láti ekki vita af mér næst þegar ég hef skilað af mér ritgerðinni. Annars er veðrið ansi gott í dag, sól og mjög hlýtt. Þrumuveður var um helgina með tilheyrandi úrhelli.

miðvikudagur, maí 18, 2005

Skjálfti

Jæja þá er víst komið að síðasta prófinu og reyndar því eina. Fer á morgun klukkan 14 og er orðin nett stressuð fyrir það. Það er nefnilega svo hrikalega naumt skammtað tímanum í prófum hérna. Við eigum að velja eitt efni af þremur til að skrifa um og höfum bara klukkutíma til þess. Eins og gefur að skilja þá er ekki mikið pláss fyrir mistök á svo stuttum tíma. En ég hugga mig við að þetta er mjög líklega síðasta prófið mitt EVER! Maður á reyndar aldrei að segja aldrei... En ég verð ansi glöð þegar ég klára á morgun:)

Svo ætla ég að reyna að horfa á undankeppnina í Júró um kvöldið. Var reyndar að fatta að Bretar eru ekkert að sýna hana af því að þeir eru komnir í úrslitin. Ég held samt ennþá í vonina að þetta verði sýnt á netinu hjá Rúv eða öðrum skandinavískum stöðvum. Ég er annars orðin eitthvað óvenju spennt yfir þessari keppni - getur reyndar verið að ég sé eitthvað að rugla þessu saman við prófaspenninginn:)

Hugsið til mín á morgun, takk!

p.s. Það skeit á mig fugl í dag! Ég kýs að líta á það sem gæfumerki!

mánudagur, maí 16, 2005

Allt á fullu!

Það eru fjórir dagar síðan ég kom aftur til Köben og allt búið að vera á fullu síðan. Er alveg á lokasprettinum í ritgerðinni. Hitti annan leiðbeinandann síðasta föstudag og fékk góð viðbröðg við því sem hann var búinn að lesa. Hann sagði hins vegar að frá og með þeim degi stæði ég á eigin fótum, eins og hann orðaði það. Það er nefnilega þannig hér í Danmörku að leiðbeinendur mega ekki hjálpa nemendum of mikið. Þeir mega t.d. ekki lesa og gera athugasemdir við alla ritgerðina áður en henni er skilað, heldur bara einstaka kafla. Síðan vinnur nemandinn út frá því. Held að þetta sé nú ekki alveg svona strangt heima. Það eru sjálfsagt kostir og gallar við báðar aðferðir en mér finnst aðalmálið vera að leiðbeinendur vinni vinnuna sína og leiðbeini manni við að gera vísindalegar rannsóknir. Ég hef verið mjög heppinn með leiðbeinendur og þeir hafa verið duglegir við að leiðbeina mér og gefa feedback á það sem ég hef gert. Því miður eru ekki allir nemendur hér svo heppnir. Maður heyrir sögur af sumum leiðbeinendum sem nenna varla að hitta nemendur sína eða sinna þeim almennilega. En jæja, ritgerðin sem sagt á réttu róli og ég mun hefja uppsetningu að alvöru á morgun. Búinn að skrifa allt, teikna allar myndir o.s.frv. þannig að það er ekkert annað að gera en að koma nú öllu heila klabbinu saman. Það verður sjálfsagt eitthvað maus eins og alltaf en hlýtur að hafast á endanum. Að öllum líkindum mun ég fara til Lundar til að prenta verkið, búið að bjóða mér fría prentun þar. Munar nú um það. Skiladagur er 27. maí.

Svana er auðvitað á fullu líka að læra undir prófið á fimmtudaginn. Hún situr öllum stundum á bókasafninu í St. Andrews og les og les. Dugnaður í henni eins og venjulega. Það verður langþráð stund þegar hún klárar prófið og eins hjá mér þegar ég skila ritgerðinni.

Hér er annars búin að vera bongóblíða undanfarna daga, sól og hiti. Ég hef svo sem ekkert notið hennar nema bara rétt á leið í og úr skólanum. Fór þó að skokka síðasta laugardag og komst að því að ég hef verið í betra formi... skokkaði þó í 26 mínútur en veit bara ekki hvað ég fór langt á þeim tíma... sem er kannski bara ágætt. Ætla ekkert að byrja að mæla strax :-)

fimmtudagur, maí 12, 2005

Síðasta kveðjan

Þá er komið að því að fara til Köben á ný. Flýg kl. 19 frá Edinborg. Tilfinningin er góð að því leyti að þetta er að verða búið hjá okkur og aðskilnaði lýkur alfarið í lok júní þegar ég kem til Íslands. Þetta er því síðasta kveðjan okkar Svönu af ansi mörgum þennan veturinn - sem betur fer. Hér er auðvitað búið að vera frábært að vera eins og venjulega. St. Andrews er virkilega huggulegur bær og sérstaklega þegar komið er sumar. Svo kann ég líka svo vel við litla og rólega bæi, allt svo þægilegt og afslappandi. Veðrið er búið að leika við okkur í gær og í dag, glampandi sól, hægur vindur og hiti. Ætli við förum ekki í síðasta göngutúrinn meðfram sjónum áður en ég fer á eftir.

Við sitjum hér í bókasafninu og ætlum að læra fram að hádegi. Ætlum svo að fá okkur eitthvað gott að borða. Ég er á góðu róli með ritgerðina og það er góð tilfinning að vita að ég mun skila henni eftir tvær vikur. Tek síðasta sprettinn í Köben. Svana mun kynna tillögu að rannsókninni sinni á morgun en hefur þegar fengið góð viðbrögð við henni frá kennurum. Síðan fer hún í eina prófið eftir viku, þægilegt að þurfa ekki að bíða lengur eftir því. Öfunda hana svolítið að geta verið hér aðeins lengur. Hún fær síðan mömmu sína og pabba í heimsókn 4. júní og fer heim 9. júní. Ég verð víst að bíða fram í lok júní eftir að flytja heim. En sem sagt... vona að Köben taki vel á móti mér - takk fyrir mig St.Andrews!

þriðjudagur, maí 10, 2005

Við ætlum til Kenya!

Fórum í heimsókn til bekkjarbróður Svanhildar á sunnudagskvöld. Sá er frá Kenya og heitir Douglas. Kenya-nafnið hans er Odhiambo. Hann er sérlega vingjarnlegur og skemmtilegur. Hann bauð okkur í hefðbundinn Kenyamat, kjúkling í einhverju góðu gumsi, soðið kál af mismunandi gerð, hrísgrjón og einhverja stöppu úr maíshveiti. Þetta bragðaðist mjög vel og kom okkur bara skemmtilega á óvart. Hann var sérstaklega þakklátur fyrir að okkur skyldi líka maturinn sem hann reiddi fram. Við tókum líka myndir af honum og alltaf sagði hann "thank you" eftir hverja mynd. Síðan spjölluðum við fram á kvöld og skiptumst á fróðleik um Ísland og Kenya. Hann sagði okkur frá menningunni, fólkinu, dýrunum og náttúrunni. Við sögðum honum frá svipuðum hlutum á Íslandi. Hann er búinn að bjóða okkur formlega að koma í heimsókn til Kenya og segist ætla að stjana í kringum okkur ef við komum. Hann er líka búinn að segja konunni sinni, sem bíður eftir honum heima ásamt dóttur þeirra, að við stefnum á að heimsækja þau. Hún var víst mjög glöð. Við gáfum honum fjögur póstkort af Íslandi, eitt af Reykjavík og hin af náttúrunni, og var hann þakklátur fyrir það. Strax daginn eftir sendi hann Svönu tölvupóst og sagðist hafa póstlagt kortin til Kenya svo að fjölskyldan hans gæti lært meira um Ísland :-) Hann gaf Svönu líka lyklakippu og mér armband, bæði í Kenyalitum. Það er frábært að fá að kynnast fólki frá svona ólíkum löndum. Við Svana erum harðákveðin í að fara til Kenya í heimsókn eins fljótt og við getum, helst bara á næsta ári. Það yrði meiriháttar - og ekki amalegt að vera með heimamanni!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?